Voltaren Gel
Voltaren Gel – ábendingar: bólgur
Voltaren Gel er notað við staðbundnum bólgum.
Fullorðnir og börn 14 ára og eldri: 2-4 g af hlaupi (sem jafngildir magni á stærð við kirsuber til valhnetu) er borið á aumt svæði 3-4 sinnum á sólarhring.
Mælt er með handþvotti eftir að hlaupið hefur verið borið á, nema verið sé að meðhöndla hendur.
Ef meðhöndla á bráð, minniháttar meiðsli í stoðkerfi skal ekki nota Voltaren lengur en 7 daga án samráðs við lækni.
Hafið samband við lækninn ef einkenni eru viðvarandi eða versna eftir meðferð í 7 sólarhringa.
Börn og unglingar 14 ára og yngri: Ekki liggja fyrir nægjanlegar upplýsingar um öryggi og verkun hjá börnum og unglingum 14 ára og yngri
Voltaren 11,6 mg/g hlaup. Inniheldur díklófenaktvíetýlamín. Staðbundnir bólgukvillar. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
Tengdar vörur…
-
Panodil töflur eru verkjastillandi og hitalækkandi.
-
Panodil Brus freyðitöflur eru verkjastillandi og hitalækkandi.
-
Panodil Zapp töflur eru verkjastillandi og hitalækkandi.