Voltaren Forte Gel
GSKVoltaren Forte Gel er tvöfalt sterkara en Voltaren Gel og hefur 12 tíma virkni
Voltaren Forte Gel er bólgueyðandi og verkjastillandi gegn vöðva- og liðverkjum.
Fullorðnir og börn 14 ára og eldri:
Voltaren Forte er borið á húðina á aumt svæði 2 sinnum á dag (helst að morgni og kvöldi) og er nuddað varlega inn í húðina.
2‑4 g af hlaupi (sem jafngildir magni á stærð við kirsuber til valhnetu) er nægilegt til að meðferðar á svæði sem er um það bil 400-800 cm2. Hendurnar skal þvo eftir að hlaupið hefur verið borið á, nema verið sé að meðhöndla hendur.
Lengd meðferðar fer eftir ábendingunni og klínískri svörun. Hlaupið skal ekki nota lengur en í 14 daga við meinsemdum eða bólguástandi í mjúkvef nema eftir ráðleggingum læknis.
Sjúklingar skulu hafa samband við lækninn ef einkenni eru viðvarandi eða versna eftir meðferð í 7 sólarhringa.
Voltaren Forte 23,2 mg/g hlaup. Inniheldur díklófenaktvíetýlamín. Staðbundnir bólgukvillar. Aðeins til notkunar á húð. Voltaren Forte er ekki ráðlagt börnum yngri en 14 ára. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
Tengdar vörur…
-
Voltaren Gel er notað við staðbundnum bólgum.
-
Hefur hjálpað þúsundum íslendinga með liðeymsli.
-
Verkjalyf gegn vægum til miðlungsmiklum verkjum.