Strefen með hunangi og sítrónu
Strefen er notað sem skammtímameðferð til að draga tímabundið úr særindum í hálsi hjá fullorðnum og börnum eldri en 12 ára.
Strefen dregur markvisst úr eymslum í hálsi, þ.m.t. bólgu og þrota í sárum hálsi.
Ábendingar: Hálsbólga, verkir og hiti.
Skammtar:
Fullorðnir og börn eldri en 12 ára: Sjúga skal eina munnsogstöflu rólega og láta leysast upp í munni á 3-6 klukkustunda fresti eftir þörfum. Hámarksskammtur er 5 munnsogstöflur á sólarhring. Ekki er ráðlagt að nota lyfið lengur en í 3 sólarhringa.
Börn: Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 12 ára.
Aldraðir: Ekki er hægt að veita ráðleggingar um almenna skammta vegna þess að klínísk reynsla er takmörkuð. Aldraðir eru í aukinni hættu á alvarlegum aukaverkunum.
Strefen 8,75 mg munnsogstöflur og Strefen Orange 8,75 mg Sukkerfri, munnsogstöflur. Innihalda flurbiprofen. Strefen er notað sem skammtímameðferð til að draga tímabundið úr særindum í hálsi hjá fullorðnum og börnum eldri en 12 ára. Sjúga skal eina munnsogstöflu rólega, mest 5 töflur á sólahring.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
Tengdar vörur…
-
Panodil Zapp töflur eru verkjastillandi og hitalækkandi.
-
Strefen munnúði er gegn bólgu og verkjum í hálsi.
-
Við bólgum og aukinni slímmyndun í nefi, kinnholum og nefkoki.
-
Strepsils er við eymslum og ertingu í hálsi.