Otrivin junior

/ Lausasölulyf / Kvef / Otrivin junior
Dreifingaraðili: Distica

Otrivin junior

Vörunúmer: 164125
Styrkleiki: 0,5 mg/ml
Pakkningastærð: 10 ml
Dreifingaraðili: Distica

Otrivin Junior er notað við bólgum og aukinni slímmyndun í nefi, kinnholum og nefkoki.

Otrivin Junior 0,5 mg/ml er ætlað börnum á aldrinum 2-11 ára

Ekki skal nota Otrivin lengur en 10 daga í einu.

Ekki skal nota stærri skammt en ráðlagt er, sérstaklega hjá börnum og öldruðum.

Börn á aldrinum 2-5 ára: Undir eftirliti fullorðins aðila. 1 úði í hvora nös 1 til 2 sinnum á sólarhring (á 8-10 tíma fresti) er venjulega nægilegt. Ekki úða oftar en að hámarki 3 úða í hvora nös á sólarhring.

Börn á aldrinum 6-11 ára: Undir eftirliti fullorðins aðila. 1-2 úðar í hvora nös, 2 til 3 sinnum á sólarhring eftir þörfum. Ekki úða oftar en að hámarki 3 úða í hvora nös á sólarhring.

Fyrir fyrstu notkun á að ýta 4 sinnum á úðarann til að undirbúa dæluna. Nú er dælan tilbúin til notkunar. Ef hún gefur ekki frá sér lausn þegar þrýst er á hana þarf að undirbúa dæluna að nýju eins og lýst er hér að ofan.

  1. Snýttu þér. Fjarlægðu glæru plasthettuna.
  2. Skorðaðu úðaflöskuna milli fingranna. Úðað er með því að þrýsta kraganum niður að flöskunni.
  3. Hallaðu höfðinu örlítið fram.
  4. Stúturinn á úðaflöskunni er settur upp í nösina. Úðað er einu sinni, um leið og andað er að sér inn um nefið. Farðu eins að í hina nösina.

 

Otrivin/Otrivin Junior/Otrivin Comp/Otrivin Menthol nefúði, lausn. Inniheldur Xýlómetazólínhýdróklóríð. Bólgur og aukin slímmyndun í nefi, kinnholum og nefkoki. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.

Tengdar vörur…