Vegan Vítamín D3
Wild EarthD- vítamín er nauðsynlegt bætiefni fyrir alla
D- vítamín er fituleysanlegt vítamín sem myndast í húðinni fyrir tilstilli útfjólublárra geisla sólar, á Íslandi fáum við þó litla sól og er því nauðsynlegt að taka inn D- vítamín er formi bætiefnis. D- vítamín hefur mörgum mikilvægum hlutverkum að gegna í líkamanum, það stuðlar m.a. að eðlilegu kalsíum magni í blóði, viðhaldi eðlilegra beina og tanna ásamt eðlilegri vöðvastarfsemi og eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins.
Auk D- vítamíns inniheldur blandan náttúrulega spírulínu og Nubana Green Banana Flour sem bæði hefur lengi verið þekkt fyrir heilsueflandi eiginleika sína á mannslíkamann.
Spírulína er blá- grænþörungur sem er um 60-70% prótín og hefur afar öfluga andoxunarvirkni. Spírulína inniheldur m.a. náttúrulegt A og B12 vítamín, járn og amínósýrur ásamt fitusýrunum GLA, línólín og AA. Spírulína getur haft víðtæk jákvæð áhrif á líkamann og er eflandi fyrir ónæmiskerfið.
NuBana Green Banana Flour er 100% náttúrlegt bragðlaust duft sem unnið er úr þurrkuðum bönunum og er ríkt af náttúrulegu kalíum og magnesíum sem stuðlar að eðlilegri starfsemi taugakerfisins.
Wild Earth er lífræn vörulína og fyrsta sérhannaða bætiefnalínan sem er í 100% umhverfisvænum og niðurbrjótanlegum umbúðum. Allar umbúðir brotna niður í umhverfinu á aðeins 16 mánuðum. Sérstaða Wild Earth vörulínunnar er sjálfbær framleiðsla og hún inniheldur hvorki fyllingarefni né nein aukaefni og notaðar eru jurtir í blöndurnar sem auka virkni og samlegðaráhrif.
Wild Earth vörulínan samanstendur af öllum helstu nauðsynlegu vítamínum og steinefnum sem þörf er á fyrir mannslíkamann. Wild Earth er 100% ofnæmisfrí, glúten-, laktósa og soyalaus. Öll vörulínan er vegan.
Inniheldur 1000iu af D- vítamíni í hverju hylki, ásamt ofurfæðunni spírulínu og NuBana Green Banana Flour.
Hentar barnshafandi konum og mjólkandi mæðrum.
Notkun: Eitt hylki á dag samhliða máltíð.
Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.
Artasan mælir með að neytendur leiti álits læknis eða annars fagfólks áður en þeir ákveða inntöku á vítamínum eða fæðubótarefnum. Sérstaklega á þetta við um barnshafandi konur, konur sem eru með barn á brjósti, fólk sem er að glíma við sjúkdóma, tekur lyf að staðaldri eða hefur undirliggjandi sjúkdóma.
Vítamín eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða koma í veg fyrir þá og fæðubótarefni eiga ekki að koma í stað hollrar og fjölbreyttrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.
Tengdar vörur…
-
Járnblanda sem frásogast auðveldlega.
-
Fjölvítamín fyrir karlmenn.
-
Inniheldur virka andoxunarefnið curcumin.
-
Öflug blanda af vítamínum og steinefnum fyrir ónæmiskerfið.