Revolution Macalibrium
Natural health internationalBætiefni fyrir karla með lækkandi testósteróngildi
Þegar karlar komast á miðjan aldur eiga sér stað breytingar í líkama þeirra þó ekki séu þær alltaf jafn augljósar og hjá konum. Testósteróngildi þeirra lækka með aldrinum og hjá sumum getur það haft áhrif á ýmsa líkamsstarfsemi. Helstu einkenni eru þreyta og þróttleysi, minni vöðvastyrkur, minni kynlöngun og erfiðleikar við stinningu, hitakóf, minnkandi beinmassi, aukin líkamsfita og skapstyggð getur gert vart við sig.
Náttúruleg og lífræn macarót er innihaldið í Revolution Macalibrium en maca er þekkt fyrir að styðja við framleiðslu líkamans á hormónum gegnum HPA axis eða undirstúku-heiladinguls-nýrnahettu öxulinn og kemur þannig jafnvægi á hormónabúskapinn og hormónajafnvægið.
Revolution Macalibrium hefur það að markmiði að hafa góð áhrif m.a. á kynferðislega virkni og frjósemi sem og almennt heilbrigði.
Femmenessence er með lífræna vottun í USA, Evrópu og Japan, er ekki erfðabreytt (non GMO) og með Fair Trade vottun eða sanngirnisvottun. Blandan er glútenfrí og hentar grænmetisætum.
Virkni Femmenessence hefur verið staðfest í rannsóknum og birt í virtum lækna- og vísindatímaritum.
Notkun: Almenn virkni: 1 hylki tvisvar sinnum á dag.
Mikil virkni: 2 hylki tvisvar sinnum á dag, þó skal alltaf byrja á minni skammti og bæti við hylki eftir 1-2 vikur.
Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.
Artasan mælir með að neytendur leiti álits læknis eða annars fagfólks áður en þeir ákveða inntöku á vítamínum eða fæðubótarefnum. Sérstaklega á þetta við um barnshafandi konur, konur sem eru með barn á brjósti, fólk sem er að glíma við sjúkdóma, tekur lyf að staðaldri eða hefur undirliggjandi sjúkdóma.
Vítamín eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða koma í veg fyrir þá og fæðubótarefni eiga ekki að koma í stað hollrar og fjölbreyttrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.
Tengdar vörur…
-
Fyrir konur á upphafi breytingarskeiðs, áður en blæðingar hætta.
-
Fyrir konur á breytingarskeiðinu, eftir fimmtugt.
-
Bætiefnabland fyrir karlmenn.