Multivitamin & Minerals for Men

/ Heilsuvörur / Vítamín & bætiefni / Multivitamin & Minerals for Men
fjölvítamín
Dreifingaraðili: Distica

Multivitamin & Minerals for Men

Wild Earth
Vörunúmer: 1478100
Pakkningastærð: 30 hylki
Dreifingaraðili: Distica

Fjölvítamínblanda fyrir karlmenn

Multivitamin & Minerals for Men er bætiefnablanda fyrir menn sem uppfyllir öll þau nauðsynlegu vítamín og steinefni sem mannslíkaminn þarf á að halda. Fjölvítamínið samanstendur af blöndu B vítamína ásamt K2, E, C, D-  og A vítamíni sem stuðlar að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins og hjartans. Að auki inniheldur blandan m.a. steinefnin kalk, sink, járn, selen, joð og magnesíum sem stuðlar að eðlilegri starfsemi taugakerfisins og viðhaldi eðlilegri beina og tanna, ásamt náttúrulegu túrmeriki, grænu tei, NuBana Green Banana Flour og ofurfæðunni spírulínu.

NuBana Green Banana Flour er 100% náttúrlegt bragðlaust duft sem unnið er úr þurrkuðum bönunum og er ríkt af náttúrulegu kalíum og magnesíum sem stuðlar að eðlilegri starfsemi taugakerfisins.

Spírulína er blá- grænþörungur sem er um 60-70% prótín og hefur afar öfluga andoxunarvirkni. Spírulína inniheldur m.a. náttúrulegt A og B12 vítamín, járn og amínósýrur ásamt fitusýrunum GLA, línólín og AA. Spírulína getur haft víðtæk jákvæð áhrif á líkamann og er eflandi fyrir ónæmiskerfið.

Wild Earth er lífræn vörulína og fyrsta sérhannaða bætiefnalínan sem er í 100% umhverfisvænum og  niðurbrjótanlegum umbúðum. Allar umbúðir brotna niður í umhverfinu á aðeins 16 mánuðum. Sérstaða Wild Earth vörulínunnar er sjálfbær framleiðsla og hún inniheldur hvorki fyllingarefni né nein aukaefni og notaðar eru jurtir í blöndurnar sem auka virkni og samlegðaráhrif.

Wild Earth vörulínan samanstendur af öllum helstu nauðsynlegu vítamínum og steinefnum sem þörf er á fyrir mannslíkamann. Wild Earth er 100% ofnæmisfrí, glúten-, laktósa og soyalaus. Öll vörulínan er vegan.

Notkun: Eitt hylki á dag samhliða máltíð.

Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.

Artasan mælir með að neytendur leiti álits læknis eða annars fagfólks áður en þeir ákveða inntöku á vítamínum eða fæðubótarefnum. Sérstaklega á þetta við um barnshafandi konur, konur sem eru með barn á brjósti, fólk sem er að glíma við sjúkdóma, tekur lyf að staðaldri eða hefur undirliggjandi sjúkdóma.

Vítamín eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða koma í veg fyrir þá og fæðubótarefni eiga ekki að koma í stað hollrar og fjölbreyttrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.

Tengdar vörur…