Liip Smart Monitor

- Barnavöruverslanir
Liip Smart Monitor er snjallarmband sem mælir púls, súrefnismettun og hitastig barnsins. Sérstaklega hannað svo foreldrar geti andað léttar og sofið betur.
Sækja þarf frítt app í snjallsíma eða spjaldtölvu sem gerir foreldrum mögulegt að safna nákvæmum upplýsingum um heilsu barnsins. Í appinu er hægt að geyma upplýsingar í allt að 12 mánuði. Möguleiki er að vera með appið í fleiri en einum snjallsíma eða spjaldtölvu. Það tæki sem er næst barninu er virkt en ef það tæki verður t.d. rafmagnslaust tekur næsti sími eða tæki við.
Liip Smart Monitor er fyrir ný fædd börn upp í 7 ára aldur. Þrjár ólar í mismunandi stærðum fylgja með svo hægt er að aðlaga armbandið eftir aldri barnsins. Ólarnar eru einstaklega mjúkar og sérstaklega hannaðar með viðkvæma húð barna í huga. Mælt er með að setja armbandið utan um ökklann á börnum frá fæðingu til 1 árs til þess að auka þægindi fyrir barnið.
Armbandið var nýlega kosið „The best child safety product in the world“.
- Mælir súrefnismettun, hjartslátt og hitastig barns
- Fyrir börn frá fæðingu til 7 ára aldurs.
- Fylgist með heilsu barnsins og safnar nákvæmum upplýsingum í frítt app sem geymast í allt að 12 mánuði.
- Tekur aðeins 1 klst að hlaða armbandið og batteríið endist í allt að 13 klst.
- Tengist við fleiri en einn síma eða snjalltæki.
- Tengist með Bluetooth
- Hægt að nota hvar sem er, hvenær sem er.
Varan uppfyllir strangar RoHs reglur og þær öryggisreglur sem þurfa að vera til staðar þegar kemur að vörum fyrir börn og ungabörn.
ATH – Liip Smart Monitor er ekki lækningartæki heldur snjallarmband fyrir börn.
Tengdar vörur…
-
Fyrir sárar og aumar geirvörtur.
-
Tvöfaldur rennilás til að tryggja lokun.
-
Bangsi með áföstu snuði.
-
Hægt að mjólka með einni hendi og auðvelt að ná fram tæmingarviðbragði.