Hámarkaðu upptöku D- vítamíns með munnspreyjunum frá Better You
D-vítamínskortur er algengur í vestrænum löndum og getur haft mjög alvarlegar afleiðingar til lengri tíma. Þetta næringarefni skiptir sköpum fyrir heilbrigt ónæmiskerfi, eðlilega vöðvastarfsemi og sterkar tennur og bein. Hér á Íslandi getur reynst erfitt að fá nægilegt magn D- vítamíns, sérstaklega yfir vetrarmánuðina, þar sem sólin — helsta uppspretta D- vítamíns — skín ekki nægilega hátt á himni til að húðin framleiði nægilegt magn. Aðeins um 10% af D- vítamíni kemur úr fæðunni, sem eykur hættuna á skorti.
Rannsóknir sýna að hlutverk D- vítamíns er umfangsmeira en margir gera sér grein fyrir. Það er lykilþáttur í að viðhalda almennri heilsu og vellíðan og getur jafnvel dregið úr líkum á ýmsum heilsufarsvandamálum. Vitað er um a.m.k. 100 mismunandi sjúkdómseinkenni eða sjúkdóma sem tengjast D-vítamínskorti.
Embætti landlæknis mælir sérstaklega með því að Íslendingar taki D- vítamín sem bætiefni. Á vef embættisins segir: „Þó almennt sé hægt að fullnægja næringarefnaþörfinni með fjölbreyttu og vel samsettu fæði er Íslendingum ráðlagt að taka D- vítamín sérstaklega sem bætiefni.“
Munnsprey fram yfir töflur
Nýlegar rannsóknir sýna að munnsprey geta verið mun árangursríkari leið til að auka D-vítamínmagn í líkamanum en hefðbundin gelhylki, sérstaklega fyrir þá sem glíma við meltingarvandamál. Í rannsókn sem birt var í Nutrients (2015) kom í ljós að D3-vítamín í munnspreyformi skilaði betri árangri í blóðgildum miðað við gelhylki [1].
Í rannsókninni var borið saman hversu mikið D3- vítamín jókst í blóði tveggja hópa: heilbrigðra einstaklinga og þeirra sem eiga erfitt með að nýta vítamín vegna meltingarvandamála.
- Hjá heilbrigðum einstaklingum jókst D3- vítamínmagn í blóði um 21,7% með hylkjum, en með munnspreyjum jókst það um 43% – eða tvöföld aukning.
- Hjá einstaklingum með meltingarvandamál var árangurinn enn meiri: D3-vítamín magn jókst um 36% við notkun hylkja en um 118% með munnspreyjum.
Þessar niðurstöður staðfesta að munnsprey tryggja betri og hraðari upptöku D- vítamíns, þar sem þau fara fram hjá meltingarveginum og frásogast beint í blóðrásina. Þetta gerir munnspreyin að einstaklega góðu vali fyrir alla, hvort sem fólk á í erfiðleikum með meltingu, vill ekki taka töflur, á erfitt með að kyngja töflum eða einfaldlega vill hámarka upptöku vítamínsins á áhrifaríkan hátt.
Gott bragð til að bæta heilsuna
Að tryggja daglega inntöku D- vítamíns hefur aldrei verið einfaldara. Munnspreyin frá Better You bjóða upp á bragðgóða, þægilega og áhrifaríka leið til að hámarka upptöku þessa mikilvæga næringarefnis. Þau eru fáanlegir í mismunandi styrkleikum og henta öllum aldurshópum — hvort sem um er að ræða börn, fullorðna eða eldra fólk.
Með því að fara fram hjá meltingarveginum og frásogast beint í blóðrásina tryggja munnspreyin betri nýtingu D- vítamíns, hvort sem þú ert heima, í vinnunni eða á ferðinni. Veldu lausn sem hentar þínum þörfum og leggðu grunn að sterkari beinum, öflugra ónæmiskerfi og bættri heilsu.
Heimild:
[1] J. Todd et al., Nutrients. 2015;7(11):5441-5452. PMC4627615