Alflorex
NavamedicAlflorex® góðgerlar eru fyrstu og einu góðgerlar sem samþykktir eru sem lækningavara á Íslandi!
Alflorex® hylki við iðraólgu (IBS) innihalda einkaleyfisvarða bakteríustofninn Bifidobacterium longum 35624®. Viðurkennt er af sérfræðingum í læknisfræði að góður sönnunargrundvöllur sé fyrir að þessi einstaki bakteríustofn dragi úr einkennum iðraólgu. Bakteríustofninn í Alflorex® við iðraólgu nær lifandi niður í þarmana þar sem hann festir sig við þarmavegginn og myndar róandi og styrkjandi vörn.
Iðraólga einkennist af endurteknum óþægindum og/eða verkjum í kvið, breytingum á tíðni hægðalosunar og útliti hægða og uppþembu. Iðraólga er almennt langvinnt og ófyrirsjáanlegt ástand.
Alflorex® við iðraólgu er flokkað sem lækningavara (IIb). Þetta er viðurkennd heilsuvara sem uppfyllir skilyrði til CE-merkingar (CE0477).
Alflorex® dregur úr einkennum iðraólgu, þ.m.t. uppþembu og vindgangi, kviðverkjum, niðurgangi og hægðatregðu.
Eitt hylki á dag með eða án matar. Má taka hvenær sem er dags.
Í staðinn fyrir að gleypa hylkið má líka opna það og strá innihaldinu yfir mat eða blanda saman við vökva.
Artasan mælir með að neytendur leiti álits læknis eða annars fagfólks áður en þeir ákveða inntöku á vítamínum eða fæðubótaefnum. Sérstaklega á þetta við um barnshafandi konur, konur sem eru með barn á brjósti, fólk sem er að glíma við sjúkdóma og tekur lyf að staðaldri eða hefur undirliggjandi sjúkdóma á borð við flogaveiki, ofvirkan skjaldkirtil og sykursýki.
Vítamín eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða koma í veg fyrir þá og fæðubótaefni eiga ekki að koma í staðinn fyrir fjölbreytt og hollt mataræði.
Tengdar vörur…
-
Náttúruleg vörn gegn magaóþægindum.
-
Góðgerlar fyrir jafnvægi í bakteríuflóru líkamans.
-
Sérhönnuð góðgerlablanda fyrir þarmaflóruna og viðkvæm svæði.
-
Öflugustu meltingarensím Enzymedica.